Gæði, öryggi og umhverfi
Suðurverk vinnur eftir gæðastjórnunarkerfi í samræmi við ISO 9001. Öryggis-, umhverfis- og starfsmannamál eru sameiginleg ábyrgð allra sem koma að verki.
Gæðastefna
Suðurverk einsetur sér að sjá viðskiptavinum sínum fyrir góðri almennri verktakaþjónustu í mannvirkjagerð og að vera í hæsta gæðaflokki á því sviði. Stefnt skal að settu marki með því að efla eftirfarandi:
Samkeppnishæfni
Að fyrirtækið veiti faglega þjónustu sem er löguð að þörfum sérhvers viðskiptavinar og stenst samanburð við það besta í alþjóðlegu umhverfi.
Gæði
Traust og góð þjónusta og að upplýsingamiðlun sé samkvæmt bestu vitneskju á hverjum tíma.
Eigin hæfni
Gæði byggi á styrkum innviðum fyrirtækisins þar sem farið er eftir kröfum gæðastjórnunarkerfisins ISO 9001 með öflugu innra eftirliti og stöðugum umbótum.
Samstarf við verktaka
Gerðar eru sömu gæða-, umhverfis- og öryggiskröfur til verktaka og þjónustuaðila og fyrirtækið gerir til eigin starfsemi.
Öryggisstefna
Það er stefna Suðurverks að vera í fararbroddi á meðal verktaka í öryggis- og vinnuumhverfismálum. Tilgangur þessarar stefnu er eftirfarandi: að sérhver starfsmaður snúi ávallt heill heim úr vinnu í lok hvers vinnudags og líði vel í starfi. Fyrirtækið skal ávallt uppfylla kröfur stjórnvalda í öryggis- og vinnuumhverfismálum samhliða því að vinna ötullega að stöðugum úrbótum í þessum málaflokkum.
Umhverfisstefna
Það er stefna Suðurverks að vinna í sátt við umhverfið og með sjónarmið umhverfisverndar að leiðarljósi. Umgengni við umhverfið skal ávallt vera með þeim hætti að ekki hljótist mengun af eða annar skaði og tryggja stöðugar úrbætur í umhverfisstjórnun. Fyrirtækið skal ávallt uppfylla kröfur stjórnvalda í umhverfismálum samhliða því að vinna ötullega að stöðugum úrbótum í þessum málaflokkum.
Starfsmannastefna
1. Hæft starfsfólk
Fyrirtækið leitast ávallt við að hafa á að skipa hæfu, ábyrgu, áhugasömu og traustu starfsfólki í samræmi við starfssvið fyrirtækisins. Sóst er eftir fólki sem á auðvelt með að vinna í hópi og er sveigjanlegt. Mikilvægt er að gagnkvæm virðing og umburðarlyndi einkenni samskipti innan fyrirtækisins.
2. Öryggi og umhverfi
Öryggis- og umhverfismál eru á sameiginlegri ábyrgð allra starfsmanna. Leitast skal við að tryggja öllum starfsmönnum öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi. Mikilvægt er að starfsfólk þekki og vinni í samræmi við skráðar öryggisreglur fyrirtækisins og gildandi vinnuverndarreglur til að tryggja öryggi fólks, búnaðar og vinnuumhverfis. Einnig að það noti undir öllum kringumstæðum öryggisbúnað, hlífðarfatnað og persónuhlífar sem kröfur eru gerðar um.
3. Gæði í samskiptum
Allir starfsmenn bera sameiginlega ábyrgð á því að gæði séu höfð að leiðarljósi í samskiptum við verkkaupa og aðra þá er fyrirtækið á í viðskiptum við. Markmið fyrirtækisins er að takast á við breytingar með jákvæðu hugarfari og faglegri og persónulegri færni.
4. Bestu tæki og þjálfun
Fyrirtækið leggur áherslu á að bjóða starfsmönnum upp á besta tækjakost sem völ er á hverju sinni og leggur með því grunn að þróun og þjálfun á færni starfsmanna. Lögð er áhersla á nýliðaþjálfun til að koma starfsfólki sem fyrst inn í vinnuaðstæður og uppbyggingu fyrirtækisins.
5. Jafnrétti
Konum og körlum er starfa hjá fyrirtækinu eru greidd jöfn laun og njóta sömu kjara og réttinda fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf. Gæta skal jafnréttis við ráðningar og huga að því að jafna stöðu kynjanna.
6. Einelti og áreitni
Fyrirtækið leggur áherslu á að öll hegðun sem flokkast undir einelti eða kynferðislega áreitni sé ekki liðin.
7. Upplýsingagjöf
Leitast skal við að upplýsingagjöf sé góð til að unnið sé sem best samkvæmt stefnu og markmiðum fyrirtækisins. Mikilvægt er að starfsmannamál séu meðhöndluð á samræmdan hátt og að jafnræði og sanngirni skuli ríkja í öllum samskiptum á vinnustað.
Hafa samband
Spurningar um verklag, öryggi eða umhverfismál? Við tökum gjarnan samtalið.
