
Jarðvinna og undirbúningur framkvæmda
Umfangsmikil jarðvinna, skeringar, fyllingar, efnisvinnsla og undirbúningur fyrir mannvirki, vegi og iðnaðarsvæði.
Suðurverk tekur að sér verkefni þar sem reynsla, tæki, mannskapur og skipulag þurfa að vinna saman. Við vinnum með verkkaupum, ráðgjöfum og samstarfsaðilum að framkvæmdum sem krefjast afkasta, ábyrgðar og traustrar verkstjórnar.

Umfangsmikil jarðvinna, skeringar, fyllingar, efnisvinnsla og undirbúningur fyrir mannvirki, vegi og iðnaðarsvæði.

Nýir vegkaflar, endurbætur, brýr og hringtorg — verkefni sem krefjast nákvæms verklags og traustrar framvindu.

Hafnarmannvirki, brimvarnargarðar, grjótgarðar, viðleguköntur og tengdar strand- og hafnarframkvæmdir.

Stíflur, veitur, skurðir og stór virkjunartengd jarðvinnuverkefni fyrir orku- og vatnsbúskap.

Varnargarðar, leiðigarðar og jarðvegsstyrkt varnarmannvirki þar sem öryggi og nákvæmni skipta mestu.

Jarðvinna og undirbúningur fyrir stór iðnaðarverkefni, undirstöður, lóðir og tengd mannvirki.
Yfirferð gagna og verkumfangs
Mat á tækjum, mannafla og aðstæðum
Framkvæmdaáætlun og verktilhögun
Verkstjórn, framvinda og samskipti
Frágangur og skil
Sendu okkur upplýsingar um verkið og við höfum samband.